Færsluflokkur: Bloggar

Algjör plága

Af einhverjum ástæðum hefur aldrei verið tekið á þessu vandamáli, þó það sé búið að vera til staðar í langan tíma. Það keyrir svo um þverbak þegar þetta er látið viðgangast í viðurvist ferðaþjónustuaðila sem sér hæga sig m.a. í þessum málum. Utanvegarakstur er að verða algjör plága hér á landi, eftirlitið er ekkert og viðurlögin nánast engin.
mbl.is Tóku myndir af utanvegaakstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyndilegur áhugi á fangelsismálum

Alltaf eru íslendingar samir við sig.

Ég las það í blaðagrein fyrir nokkrum árum (man ekki höfund greinarinnar) að þegar menn keyrðu framhjá fangelsi þá litu þeir frekar undan, vildu ekki kannast við svoleiðis stofnun í samfélaginu og teldu sig óhreinkast af því að koma nærri slíkri stofnun.

Nú ber annað við. Skyndilega vaknar upp mikill áhugi á þessu fyrirbæri og þá sérstaklega þeim þætti er lýtur að gæsluvarðhaldi. Fjölmiðlar keppast um að lýsa því hvernig það sé að vera í gæsluvarðhaldi, almenningur hefur mikinn áhuga á þessu og hver spekingurinn á fætur öðrum sprettur upp og tjáir sig um málið.

Er það hækkandi sól sem skyndilega vekur upp þennan mikla áhuga eða eitthvað annað? Nei svo er ekki. Nokkrir hvítflibbaglæponar hafa verið settir í gæsluvarðhald og þá er eins og allt fari á hvolf. Hafi það verið Jón á öskubílnum sem hnepptur var í gæsluvarðhald væri enginn að spekúlera í þessu. Jón á öksubílnum á samt að baki sér tilfinningar, fjölskyldu, ástvini og líf.

Svona er Ísland, hræsnin kraumar stöðugt upp á yfirborðinu.


Nú fór lögsmannsundrið yfir strikið

Sú búsáhaldabylting sem háð var á sínum tíma var nokkuð sérstakt fyrirbæri. Smá hópur setti þó ljótan blett á þetta fyrirbæri og það er einmitt sá hópur sem nú er reynt að rétta yfir. Ég treysti dómstjóra og lögreglu fullkomlega að meta þær aðstæður sem fyrir eru þegar þessir einstaklingar eiga í hlut. Ragnar Aðalsteinsson er hins vegar fyrirbæri sem hefur í gegnum tíðina reynt að skaða framvindu réttar og öryggis í samfélaginu og fremur stuðlað að sundrungu frekar en hitt.
mbl.is Þinghald verði opið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bændur hljóta að bugast

Síðust fréttir af gosinu eru skelfilegar og ef heldur svona áfram hljóta að vakna upp þær spurningar hvort bændur bugist ekki og þurfi að skera niður bústofninn. Þetta gos er eitt af ljótasta gosi sem hefur komið í langan tíma.
mbl.is Kolniðamyrkur við jökulinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvaldið Landsvirkjun

Maður hefur oft heyrt því fleygt fram að þegar eitthvað standi til hjá Landsvirkjun þá sé lítið hægt að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem þar eru teknar. Gildir þá sama hvort um leikmann er að ræða, fræðimenn eða þá sem málið varðar vegna eigna, hlunninda eða vegna náttúrusjónamiða. S.l. þriðjudag fór ég á kynningafund á Hótel Nordica þar sem kynnt voru frumathugun Skipulagsstofnunar á frummatsskýrslum um mat á umhverfisáhrifum fyrir Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, háspennulínur frá virkjunum að álveri, álver á Bakka og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra. Voru þar mættir helstu aðilar sem að þessum málum hafa komið. Gott var kaffið og kleinurnar svo og allar móttökur og framsetning kynningarinnar.

Efnislega hef ég ekki tekið ákvörðun með eða á móti álveri á Bakka. Heildarmyndir verður að birtast fullsköpuð áður. Eitt mál er þó mér skylt en það er lagningu háspennulína yfir Reykjaheiði. Ekki ætla ég að lýsa lagningu þeirra eitthvað nákvæmlega, en hægt er að skoða það á vef Landsnet og víða. En svo fólk átti sig á þessu að þá er fyrirhugað að Hólasandslínan fari vestan við Lambafjöll og áfram norð-vestur og vestan Höskuldsvatns. Með þessu móti er línan lögð nánast við nærumhverfi þeirra bæja sem eiga landið. Til að ná sáttum höfum við með tveim andmælum bent á að hafa hana samsíða Kópaskerslínunni sem liggur til austurs meðfram Höfuðreiðarmúla (miklu austar). en síðan lögð til vesturs sunan Höskuldsvatns. Með því móti væri línan lögð við hlið annarra línu sem hefur staðið lengi og menn almenn sáttir við. Eins og skipulagið gerir nú ráð fyrir þá mun línan valda mikilli sjónmengun, auk þess sem hún fer þvert í gegnum land sem þúsundum vinnustunda hefur verið lagt í að græða upp og koma í veg fyrir uppblástur og niðurbrot á fokbörðum. Hefur þetta verið gert m.a. í góðri samvinnu við Landgræðsluna, auk þess sem vakið hefur athygli árangur í uppgræðslu áður gróðurlausra mela sem þarna eru, en í dag grasigrónir.

Ekki bætir úr fyrirhuguð lagning svonefndra Þeistareykjalínu. Af einhverjum ótrúlegum ástæðum er hún lögð yfir Jónsnípu niður á Árnahvamm. Þarna er línan lögð yfir háan múla og sama hvort farið er austur eða vestur Reykjaheiði, línan mun bera hátt við himinn. Í andmælunum tveim sem sendar hafa verið er lagt til að línan sé lögð austan og meðfram Höfuðreiðarmúla en þegar múlanum sleppir færi hún til vesturs og sameinaðist Hólasandslínunni. Þannig væri línan minnst áberandi í umhverfinu.

Eins og fyrr hefur komið fram er búið að andmæla þessum línulögnum tvisvar samkvæmt reglum og lögum. Nú bíður okkar að andmæla þessu í þriðja sinn og að þessu sinni til Skipulagsstofnunar. Þetta er víst ferlið í þessum málum, en oft kemur mér í hug að aðferð veiðimannsins sé notuð, þreytir bráðina nógu mikið, þá gefst hún upp á endanum.

En svo ég komi nú aftur að fundinum góða á Nordica að þá, þrátt fyrir gott kaffi og góðar kleinur var andinn eingöngu á einn veg. Þetta er krafa Landsvirkjunar og ekkert múður. Skipulagsaðilar lúta í lægra haldi við Landsvirkjun, skipulag Húsavíkur samþykkir allt sem Landsvirkjun segir, Landsnet gerir bara allt sem Landsvirkjun segir. LANDSVIRKJUN ER ALVALDUR. Maður hefur í tilfinningunni að hverskonar andmæli séu fyrirfram ákveðin dauð og ómerk fyrir þessu ALVALDI.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband